Heyrirðu í þér?

Í gærmorgun ætlaði ég að skrifa nokkrar línur. Það tók mig fimm mínútur að koma einni málsgrein frá mér. Ekki af því að ég hefði ekkert að segja - heldur af því að það var svo mikið að segja að ekkert komst í gegn.
Þetta er það sem ég kalla hávaða í rásunum.
Við erum með margar rásir í gangi í einu - vinnan, heimilið, heilsan, það sem við eigum að gera, það sem við ættum að vera búin að gera, það sem einhver sagði á samfélagsmiðlum að við yrðum að prófa... Hver rás er kannski ekki svo hávær ein og sér. En saman verður þetta suð. Og í suðinu heyrum við ekki í okkur sjálfum.
Það sem vill raunverulega koma fram er oft lágvært. Það þarf pláss.
Þess vegna elska ég markþjálfun. Hún er ekki um að einhver segi þér hvað þú átt að gera - heldur að skapa rými þar sem hávaðinn fær að setjast og þú heyrir hvað er undir. Góð spurning getur gert meira en hundrað ráð.
Mér finnst gaman að fara óhefðbundnar leiðir. Ég er oft með spil á borðinu. Við drögum spil, skoðum myndina og orðin og sjáum hvað vaknar. Spilin vita ekkert um líf þitt - en þau gefa okkur eitthvað til að horfa á saman, og það er ótrúlegt hvað kemur upp þegar athyglin fær að hvíla á einhverju öðru en vandamálinu sjálfu. Stundum er það áminning, stundum staðfesting, stundum alveg nýr vinkill.
Það er leið til að hreinsa rásirnar og heyra hvað vill koma fram.
Aðrir hugsa betur með penna í hendi og krota á blað. Sumir þurfa að leggjast á bekkinn og anda áður en orðin koma. Það er engin ein rétt leið - bara sú sem virkar fyrir þig.
Og svo kemur seinni hlutinn, sá sem skiptir mestu: að taka það sem kom fram og koma því út í lífið. Í eitt lítið skref. Í takti sem passar þér.
Ég er ekki komin á leiðarenda í þessu sjálf - langt frá því. Ég dett ennþá í suðið. En ég er farin að þekkja leiðina til baka, og það er hún sem mig langar að ganga með öðrum.
Svo ég spyr þig - heyrirðu í þér í dag?