Markþjálfun
Samtöl sem skapa skýrleika, dýpka tengsl við það sem skiptir máli og hjálpa þér að taka næstu skref af ásetningi.

Velkomin til MÓT
MÓT er rými fyrir fólk sem finnur að eitthvað er að breytast, en sér ekki enn alla myndina. Með forvitni, samtali og ígrundun opnast nýjar leiðir og næstu skref verða skýrari.
Forvitni mætir Skýrleika
Ígrundun mætir Framþróun
Óvissa mætir Nýjum leiðum
Þú mætir Þér
Hvernig við getum unnið saman
Samtöl sem skapa skýrleika, dýpka tengsl við það sem skiptir máli og hjálpa þér að taka næstu skref af ásetningi.
Vinnustofur sem skapa rými fyrir samtal, sameiginlegan skilning og skýra stefnu áfram.
Örugg umgjörð fyrir mikilvæg samtöl þar sem hver rödd fær rými og ákvarðanir ná að festast.
Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja skýrari ferla og betri kerfi utan um fólkið sitt, frá ráðningu og móttöku til daglegs utanumhalds. Lausnir sem létta álagið í stað þess að bæta við það.

Um MÓT
MÓT varð til úr einfaldri athugun: Þegar fólk fær tíma og rými til að staldra við gerist eitthvað merkilegt. Ný sjónarhorn birtast. Samhengi verður skýrara. Næstu skref taka að mótast.
Rauði þráðurinn í mínu lífi hefur alltaf verið löngunin til að gera betur. Ekki endilega hraðar, meira eða skilvirkar, heldur betur. Bæði fyrir fólkið sjálft og umhverfið sem það lifir og starfar í.
Ég hef starfað í upplýsingatækni frá 2012 og með áherslu á mannauðsmál frá 2017. Ég er með BSc í virðiskeðjustjórnun og meistaragráðu í stefnumótun og stjórnun, og er vottaður markþjálfi og jógakennari.
Hjá MÓT mætast þessir heimar. Því þegar fólkinu líður vel og kerfin styðja við það verður betra ekki bara skilvirkara, heldur líka léttara.
Íris Ósk Ólafsdóttir
Ráðgjafi á mótum fólks, ferla og tækni
Leiðin
Hvort sem um er að ræða einstakling, teymi eða fyrirtæki byrjum við oft á svipuðum stað.
Það er eitthvað sem skiptir máli. Hugmynd sem vill verða að veruleika. Breyting sem kallar á athygli. Ákvörðun sem bíður þess að verða tekin.
Á sama tíma er yfirleitt eitthvað sem stendur í vegi fyrir. Óvissa. Ótti. Flækja. Tregða. Eða einfaldlega of mikill hávaði til að sjá hlutina skýrt.
Verkefnið er sjaldnast að finna hið fullkomna svar.
Verkefnið er að skilja hvert við viljum fara, hvað stendur í vegi fyrir og hvernig við getum farið leiðina á okkar eigin forsendum.
Þar kemur forvitnin inn.
Með forvitni skoðum við ný sjónarhorn, spyrjum betri spurninga og gefum því sem skiptir máli rými til að koma í ljós.
Hvert langar okkur að fara?
Átt snýst ekki bara um markmið heldur það sem skiptir raunverulega máli.
Hvað stendur í vegi fyrir?
Fyrirstaðan er ekki alltaf augljós. Stundum þarf fyrst að sjá hana áður en hægt er að fara áfram.
Hvernig viljum við fara leiðina?
Sjálfbær breyting verður sjaldnast til með því að keyra hraðar áfram. Hún verður til þegar við finnum takt sem við getum raunverulega fylgt.
Spurningarnar sem opna nýjar leiðir.
Forvitnin er rauði þráðurinn í gegnum allt sem MÓT gerir. Hún hjálpar okkur að skilja áttina betur, mæta fyrirstöðunum af heiðarleika og finna takt sem er í samræmi við aðstæður og tilgang.
Forvitni

Hafðu samband
Hvort sem þú stendur á tímamótum, ert með hugmynd sem vill verða að veruleika eða þarft einfaldlega nýtt sjónarhorn, þá þarftu ekki að finna út úr því ein/n. Hafðu samband og við finnum rólega stund til að spjalla — engin dagskrá, engin pressa. Bara samtal.